Tekist hefur að slökkva eld sem kviknaði fyrr í kvöld í einbýlishúsi í Hafnarfirði en allt tiltækt lið slökkviliðs og lögreglu var sent á vettvang. Engin meiðsl urðu á fólki. Um timburhús er að ræða við Gunnarssund en heimildir mbl.is herma að efri hæð hússins sé afar illa farin.
Rífa þurfti stóran hluta þaks hússins en aðeins er frágangsstarf enn óunnið. Slökkvilið mun vakta svæðið áfram ef vera kynni að glóðir leyndust þar enn.