Virðingavert að fara yfir starfsemina

BHM fagnar því að hvalaskoðunarfyrirtækið Elding hafi beðist afsökunar og …
BHM fagnar því að hvalaskoðunarfyrirtækið Elding hafi beðist afsökunar og ætli að fara yfir sína starfsemi. Sigurður Ægisson

BHM fagnar því að hvalaskoðunarfyrirtækið Elding hafi beðist afsökunar og ætli að fara yfir sína starfsemi. „Maður getur ekki annað en fagnað því ef fyrirtækið er búið að biðjast afsökunar og ætlar að fara yfir sína starfsemi svo rétt sé að öllu staðið og það finnst mér mjög virðingarvert,“ segir Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BHM.

BHM gerði í vikunni at­huga­semd­ir við aug­lýs­ingu sem send var á opin póstlista vísindamanna sem stunda rannsóknir á sjávarspendýrum.  Auglýst var eftir tveimur sér­fræðing­um í ólaunuð sjálf­boðastörf við rann­sókn­ir á hegðun hvala. Í aug­lýs­ing­unni kom fram að auk vís­indastarfa væri gert ráð fyr­ir að starfs­menn­irn­ir ann­ist af­greiðslu­störf og þrif um borð í hvala­skoðun­ar­bát­um fyr­ir­tæk­is­ins. Þeir þurfi að vera reiðubún­ir að vinna í allt að 14 klukku­stund­ir á dag og fái aðeins fæði og hús­næði fyr­ir.

Í yfirlýsingu sem Elding sendi frá sér í gær  segir að mannleg mistök hafi valdið því að í auglýsingunni hafi komið fram öll til­fallandi störf um borð í bát­um fyrirtækisins, Fyrirtækið harm­i mis­skiln­ing­inn sem risið hefur vegna máls­ins og biðst vel­v­irðing­ar á mis­tök­um sín­um. Elding hafi enn fremur svarað fyrirspurnum sem BHM sendi fyrirtækinu um sl. helgi, án þess að fá nokkur viðbrögð.

Ekki haldbær rök

„Við fengum viðbrögð frá Eldingu við bréfi BHM og þar voru ákveðna eftirá skýringar sem okkur fundust ekki vera haldbær rök,“ segir Erna. „Þar kom t.d. ekkert fram um að ef þau væru beðin um að sinna ákveðnum störfum umfram rannsóknarverkefnið þá fengju þau borgað fyrir það.“

Hún segir að ekki hafi farið milli mála í auglýsingunni sem BHM fékk senda að auglýst var eftir fólki til að sinna ákveðnum störfum undir yfirskini sjálfboðavinnu.

„Hins vegar getur maður ekki annað en fagnað því ef fyrirtækið er búið að biðjast afsökunar og ætlar að fara yfir sína starfsemi svo rétt sé að öllu staðið og það finnst mér mjög virðingarvert. Við viljum að fyrirtæki fari eftir lögum og kjarasamningum og ef það er einhver pottur brotinn eins og við vorum að benda á, þá er bara gott ef það er lagað.“

BHM hvetji fyrirtæki til að fara yfir sitt verklag svo þau uppfylli lög um kjarasamninga á Íslandi gagnvart íslensku og erlendu starfsfólki.

„Auðvitað vonumst við til að þeir borgi þeim starfsmönnum sem fara að starfa hjá þeim, það þýðir ekki að fá fólk til starfa undir yfirskini sjálfboðavinnu og láta það svo vinna,“ segir Erna. En í yfirlýsingu Eldingar segir að  „rann­sóknaaðilarn­ir telj­ast ekki til áhafn­ar né starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins og telj­ast því til farþega um borð.“

Hún bendir á að þeir sem taka að sér sjálfboðastörf séu ekki með neina tryggingavernd, hvorki sjúkdóma né slysatryggingar. „Það er alvarlegt og nokkuð sem sjálfboðaliðar átta sig oft ekki á.“

Mannleg mistök hjá Eldingu

Hvalaskoðunarfyrirtæki auglýsti sjálfboðaliðastörf

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert