Dýrafjarðargöng á áætlun

Frá Þingeyri við Dýrafjörð.
Frá Þingeyri við Dýrafjörð. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Áætlað er að ráðstafa fjármagni úr ríkissjóði til Dýrafjarðarganga á næstu þremur árum, samkvæmt tillögu að samgönguáætlun 2015 til 2018 sem Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, mælti fyrir á Alþingi á þriðjudag. Tillagan er til umfjöllunar hjá umhverfis- og samgöngunefnd.

Unnið er að alþjóðlegu forvali sem yrði á næstu vikum og á útboð verksins að fara fram síðla þessa árs. Reiknað er með að gengið verði til samninga á fyrstu mánuðum ársins 2017. Framkvæmdir eiga að hefjast eftir mitt ár 2017, samkvæmt tilkynningu á vefsíðu innanríkisráðuneytisins.

„Allur undirbúningur fjárlaga og fjármálaáætlunar ríkisins hefur tekið mið af þessari framvindu mála og er vinnan samkvæmt áætlun. Áformin eru því óbreytt og unnið að því að hafist verði handa við Dýrafjarðargöng að loknum Norðfjarðargöngum,“ segir í tilkynningunni.

Frétt mbl.is: Ný jarðgöng fyrir austan og vestan

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra.
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert