Flutningabifreið með tengivagn rann til á veginum um Hófaskarð seinni partinn í dag með þeim afleiðingum að tengivagninn rakst í bifreiðina. Við það skemmdist tengivagninn illa og lenti hluti farmsins, sem mun meðal annars vera fiskur, á veginum.
Björgunarsveitarmenn frá Björgunarsveitinni Hafliða á Þórshöfn eru á leiðinni á staðinn en óskað var eftir aðstoð þeirra við verðmætabjörgun.