Fyrirtækið Mamma veit best hefur ákveðið að innkalla vöruna Raw Meal Chocolate með lotunúmerinu 47226000. Ástæðan er grunur um salmonellusmit. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.
„Vörurnar hafa verið fjarlægðar úr hillum verslana en þeir neytendur sem hafa keypt Raw Meal Chocolate með lotunúmerinu 47226000 eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila vörunni til verslunarinnar Mamma veit best, Laufbrekku 30 í Kópavogi gegn fullri endurgreiðslu.
Þeir sem hafa keypt Raw Meal Chocolate Full size lotunúmer: 47226000 geta fengið nánari upplýsingar í síma 445 8828,“ segir í tilkynningu.
Um er að ræða 986 gr umbúðir en framleiðandinn er Garden of life.