Kærir herra Níkaragva fyrir nauðgun

Frá höfuðborga Níkaragva.
Frá höfuðborga Níkaragva. Mynd/Wikipedia

Ung íslensk kona hefur kært karlmann í Níkaragva fyrir nauðgun en hún telur að sér hafi verið byrlað lyf og rankað við sér inni á hótelherbergi eftir að hafa hitt manninn í partíi á fimmtudaginn. Maðurinn var nýlega krýndur herra Níkaragva. Konan er au-pair í landinu. Fréttablaðið ræðir við konuna í dag.

Konan kærði manninn á föstudaginn og segir hún að síðan þá hafi hún þvælst á milli lögreglustöðva, heilsugæslustöðva og farið í sálfræðimat og viðtöl. Segir hún að alltaf sé verið að fresta viðtölum og að hún hafi heyrt mikið af gamaldags athugasemdum. Meðal annars hafi lögreglukona spurt hversu stuttu pilsi hún hafi verið í og hversu marga drykki hún hafi fengið sér.

Maðurinn hefur ekki enn verið yfirheyrður og segist konan vera á leið heim eftir 22 daga og að fyrir þann tíma þurfi hún að bera vitni fyrir dómara, annars falli málið niður. Haft er eftir lögmanni konunnar í Fréttablaðinu að lögreglan telji frásögn konunnar ekki næga sönnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert