Seinni undanúrslitaviðureignin fer fram að viku liðinni en þá munu eigast við lið Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs.
Lið Reykjavíkur sigraði lið Árborgar í fyrri undanúrslitaviðureign Útsvars sem fram fór í Ríkisútvarpinu í kvöld. Reykvíkingar höfðu sigur með 72 stigum gegn 71 og munaði þannig einungis einu stigi í lokin.
Seinni undanúrslitaviðureignin fer fram að viku liðinni en þá munu eigast við lið Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs.