Vegir eru að mestu greiðfærir á Suður- og Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum eru víða hálkublettir á fjallvegum en snjóþekja er Gemlufallsheiði og þæfingsfærð á Hrafnseyrarheiði. Snjóþekja er á veginum norður í Árneshrepp.
Greiðfært er að mestu á Norðurlandi en þoka er í Köldukinn og á Fljótsheiði.
Á Austurlandi er snjóþekja og éljagangur á Fjarðarheiði, Oddskarði og Vatnsskarði eystra. Þæfingsfærð er á Öxi og snjóþekja á Breiðdalsheiði.
Greiðfært er með suðausturströndinni.