Ferðamaður slasast við Geldingafell

sjúkrabíll sjúkrabílamyndir löggumyndir
sjúkrabíll sjúkrabílamyndir löggumyndir mbl.is/Hjörtur

Erlendur ferðamaður datt við Geldingafell nú síðdegis og var haft samband við Neyðarlínuna sem hefur sent sjúkrabíl á vettvang.  

Að sögn lögreglunnar á Selfossi barst þeim beiðnin um hálf fimmleytið og er sjúkrabíllinn á leiðinni að Geldingafelli, sem er við Kjalveginn á leið upp að Langjökli. Ekki liggur enn fyrir hvort meiðsl ferðamannsins séu alvarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert