Mjög hvasst er á Kjalarnesi þessa stundina og hvetur lögregla fólk til að vera ekki þar á ferðinni með eftirvagna eða á húsbílum. Að sögn lögreglu mælist vindhraðinn þar nú 45 metrar á sekúndu í hviðum.
Vegfarendur eru beðnir um að fylgjast vel með veðri á þessum slóðum áður en lagt er í ferðalag um Kjalarnes.