Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í gærmorgun, grunaður um alvarlega líkamsárás á heimili í Hamraborg í Kópavogi.
Lögreglan var kölluð á vettvang og handtók manninn.
Krafist var gæsluvarðhalds yfir honum en Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu lögreglunnar í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vildi ekki greina frá ástandi fórnarlambsins og segir málið enn vera í rannsókn.