Önnur æfing íslenska Eurovision-hópsins fór fram á stóra sviðinu í Ericson Globe höllinni í Stokkhólmi í dag.
Nokkurn tíma tók að staðsetja Gretu Salóme Stefánsdóttur rétt á sviðinu á fyrstu æfingunni á þriðjudag, en Greta Salóme þarf að vera hárrétt staðsett sviðinu svo grafíkin hafi tilætluð áhrif og hafa þrotlausar æfingar hópsins greinilega skilað árangri.