Ora hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis ákveðið að innkalla Ora-fiskbollur í karrísósu í 850 g umbúðum. Ástæðan er mistök sem urðu við hitun vörunnar og telst hún ekki örugg til neyslu.
Neytendur geta skilað vörunni í þá verslun þar sem hún var keypt. Varan fékkst í öllum verslunum Krónunnar, Nóatúns, Nettós, Kaupfélagi Skagfirðinga og versluninni Hlíðbergi.
Vöruheiti: Ora-fiskbollur í karrísósu
Strikamerki: 5690519000070
Nettoþyngd: 850 g
Lotunúmer: L1A0912 0070
Best fyrir: 31.03. 2020