Allmargir ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðastliðnum dögum.
Sá sem hraðast ók var á ferð eftir Garðskagavegi þar sem bifreið hans mældist á 150 kílómetra hraða. Hámarkshraði þar er 90 km á klukkustund. Þessa ökumanns bíður 130 þúsund kr. sekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.
Þá var einn ökumaður til viðbótar handtekinn vegna ölvunaraksturs og annar vegna fíkniefnaaksturs. Sá síðarnefndi var réttindalaus undir stýri.