„Hefðbundið íslenskt höfrungahlaup“

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

„Þriðja sumarið í röð þurfa landsmenn að búa við aðstæður þar sem fámennur starfshópur lokar fyrir samgöngur til og frá landinu með verkfallsaðgerðum. Röskun hefur orðið á millilandaflugi og innanlandsflugi vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra með óþægindum fyrir farþega og tekjutapi aðila í ferðaþjónustu. Þar við bætist álitshnekkir Íslands sem ferðaþjónustulands.“

Þetta segir í yfirlýsingu frá Samtökum atvinnulífsins. Þar segir að kröfur flugumferðarstjóra um launahækkanir séu langt umfram hækkanir í öðrum kjarasamningum. Yrði gengið að kröfunum myndi það raska því dýrkeypta jafnvægi sem komist hafi á kjaramálin og „hefðbundið íslenskt höfrungahlaup“ hæfist á ný, þar sem hver hópur myndi knýja fram meiri launahækkanir en sá sem síðast samdi. Afleiðingar séu vel þekktar, verðbólga aukist, vextir hækki og að lokum falli gengið til að lagfæra samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem starfa í alþjóðlegri samkeppni. Niðurstaðan væri sú að kjör allra versna til lengri tíma.

„SALEK-samkomulagið í október 2015 stöðvaði höfrungahlaupið sem þá var hafið og ljóst var að stefndi í óefni. Samkomulagið byggir á þeirri sýn að Íslendingar geti búið við sambærileg lífskjör og frændur okkar á Norðurlöndum. Þar var svigrúm til launahækkana til ársloka 2018 skilgreint en flugumferðarstjórar vilja nú fá mun meiri launahækkanir en aðrir vegna þess að þeir eru einfaldlega í þeirri stöðu að geta knúið þær fram. Um það verður aldrei sátt hjá öðrum hópum á vinnumarkaði nú fremur en áður þegar einstakir starfshópar hafa knúið fram mun meiri launahækkanir en aðrir hafa fengið. Kröfur flugumferðarstjóra eru því atlaga að samstöðu sem sköpuð var á vinnumarkaði haustið 2015 og fest var í sessi með endurskoðun kjarasamninga í upphafi ársins.“

 Samtökin segja veikleika íslensks vinnumarkaðar felast í því að launahækkanir séu mun meiri en í nágrannalöndunum án þess að skila betri lífskjörum. Megineinkenni íslenskra kjarasamninga sé að fámennir hópar með sterkt verkfallsvopn hóti ítrekað aðgerðum til að tryggja sér launahækkanir umfram aðra. Með SALEK-samkomulaginu hafi náðst víðtæk samstaða um nauðsyn breyttra og bættra vinnubragða í þessum efnum.

„Í upphafi vikunnar áttu hátt í hundrað manns úr atvinnulífi og verkalýðshreyfingu stefnumót þar sem rætt var um leiðir til að bæta lífskjör á Íslandi á grundvelli efnahagslegs stöðugleika. Þær fela í sér hæga en stöðuga aukningu kaupmáttar, lága verðbólgu, lága vexti og stöðugt gengi krónunnar. Stefnt er að því að nýtt vinnumarkaðslíkan verði tilbúið fyrir árslok 2018 og verði grunnur að betri vinnubrögðum við gerð kjarasamninga sem hafi það meginmarkmið að tryggja Íslendingum betri lífskjör en hið íslenska kjarasamningalíkan hefur gert.“ 

Segja samtökin því mikið í húfi að ríkið láti ekki launadeilu við flugumferðarstjóra verða til þess að stöðugleika á vinnumarkaði sé stefnt í voða en að deilan gæti dregið dilk á eftir sér.

„Íslenska ríkið annast flugumsjón á stórum hluta Norður-Atlantshafsins. Ítrekaðar launadeilur við flugumferðarstjóra, og kröfur um margfaldar launahækkanir á við aðra, bjóða þeirri hættu heim að þjónustan flytjist úr landi. Enda renna önnur ríki hýrum augum til þessarar ábatasömu starfsemi. Engar náttúrulegar aðstæður kalla á að starfsemin sé rekin hér á landi en það væri miður ef sífelldar og óbilgjarnar verkfallsaðgerðir þessa fámenna starfshóps myndu hrekja þjónustuna frá Íslandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert