Nýjar hjóla- og göngubrýr opnaðar yfir Elliðaár

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og …
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs opnuðu brýrnar.

Tvær nýjar hjóla- og göngubrýr voru í dag opnaðar yfir Elliðaár, ásamt 350 metra löngum hjóla og göngustíg sem þverar dalinn milli ánna. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði brýrnar sem bætast við ört stækkandi stígakerfi borgarinnar sem, að því er segir í fréttatilkynningu, er í takti við hjólreiðaáætlun Reykjavíkur. 

Brýrnar og stígarnir eru rétt við Rafveituhúsið, fyrir ofan Toppstöðina og tengjast stofnstígakerfinu í Elliðaárdal og Fossvogi. Brúin yfir eystri ána er 23 metra stálbrú, en brúin sem liggur yfir vestari kvíslina er 12 metra löng trébrú.

Stígarnir eru síðan 350 metra langir og er umferð gangandi vegfarenda og hjólandi aðskilin. Lýsing á stígunum verður LED með hreyfiskynjurum til að valda sem minnstri ljósmengun og spara rafmagn. Kostnaður við þessi mannvirki er á bilinu 80 – 85 milljónir. 

Við brúna yfir vestari ána hjá undirgöngunum undir Reykjanesbraut við Blesugróf hefur verið komið upp viðgerðastandi fyrir hjól þar sem hjólreiðamenn geta m.a. pumpað í dekk og lagfært fáka sína. Það er fyrirtækið Fossberg sem hefur sett um tvo slíka standa í tilraunaskyni og mun þjónusta þá í samvinnu við umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Hinn viðgerðastandurinn er við hjólastíginn í Nauthólsvík.

VSÓ Ráðgjöf hannaði stígana, brýrnar og lýsingu en Landslag ehf. sá um landslagshönnun. Verktaki sem sá um framkvæmdir var Gleipnir ehf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert