Á morgun stendur Landssamband stangaveiðifélaga fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar ásamt veiðiréttareigendum en sá hefur verið haldinn hátíðlegur í á þriðja áratug.
Gefst þá landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðs vegar um landið. Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá landssambandinu. Í ár verða 29 vötn í boði á veiðideginum.
Eftirtaldir veiðistaðir verða í boði frítt fyrir alla fjölskylduna:
Á Suðurlandi verður frítt að veiða í Eyrarvatni, Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni, Elliðavatni, Meðalfellsvatni, Þingvallavatni fyrir landi þjóðgarðsins, Úlfljótsvatni og Gíslholtsvatni.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum verður frítt að veiða í Langavatni á Mýrum, Hítarvatni, Hraunsfjarðarvatni, Hraunsfirði, Baulárvallavatni, Haukadalsvatni, Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og Syðridalsvatni í Bolungarvík.
Á Norðurlandi verður frítt að veiða í Hópinu, Höfðavatni, Botnsvatni, Ljósavatni, Hraunhafnarvatni, Æðarvatni, Arnarvatni, Kringluvatni og Sléttuhlíðarvatni.
Á Austurlandi verður frítt að veiða í Urriðavatni, Langavatni, Víkurflóði og Þveit.
Nánari upplýsingar um veiðisvæðin er að finna hér.