Bifreið var ekið út af Eyjafjarðarbraut eystri rétt fyrir klukkan fimm í dag. Einn var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar með minni háttar meiðsl.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri varð slysið með þeim hætti að bifreið var ekið út af aðkeyrslu sveitabæjar í veg fyrir umferð á Eyjafjarðarbraut eystri með þeim afleiðingum að viðkomandi, sem keyrt var í veg fyrir, keyrði út af.