Mikil örtröð er í vínbúð ÁTVR í Austurstræti í miðbæ Reykjavíkur og hefur löng biðröð myndast fyrir utan búðina.
Þar rétt hjá, á Arnarhóli, verður leikur Íslands og Englands í sextán liða úrslitum EM í knattspyrnu sýndur í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19 og streymir nú fólk í miðbæinn. Er búist við margmenni á Arnarhóli í kvöld.