Afreksnemar hljóta styrk í HÍ

Nýnemarnir við afhendinguna í dag ásamt fulltrúum háskólasamfélagsins.
Nýnemarnir við afhendinguna í dag ásamt fulltrúum háskólasamfélagsins. HÍ/Kristinn Ingvarsson

Fjórtán karlar og 14 konur tóku í dag við styrkjum úr afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi. Hver styrkur nemur 375 þúsund krónum og samanlögð styrkupphæð því rúmar 10 milljónir króna.

Þessir 28 afreksnemar eru verðandi nemendur við Háskóla Íslands og eru úr öllum landsfjórðungum. Markmið afreks- og hvatningarsjóðsins er að styrkja efnilega nýnema til náms við Háskóla Íslands. Við mat á styrkþegum er horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi auk annarra þátta líkt og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis á sviði lista eða íþrótta.

Eru í þessum 28 manna hópi samtals 12 dúxar og semidúxar úr framhaldsskólum landsins á síðustu árum.

Styrkhafarnir eru: Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir, Anna María Reynisdóttir, Arna Ýr Karelsdóttir, Aþena Eir Jónsdóttir, Bára Elísabet Dagsdóttir, Bolli Magnússon, Dagur Tómas Ásgeirsson, Daníel Þór Heimisson, Eir Andradóttir, Emil Sigurðsson, Glúmur Björnsson, Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson, Guðrún Karlsdóttir, Ingibjörg Viktoría Hafsteinsdóttir, Jóhannes Aron Andrésson, Jóna Kristín Erlendsdóttir, Karen Engilbertsdóttir, Matthias Baldursson Harksen, Matthías Árni Guðmundsson, Númi Sveinsson, Oddur Snorrason, Sindri Engilbertsson, Skúli Guðmundsson, Stefanía Katrín J. Finnsdóttir, Sylvía Spilliaert, Vilhelm Þór Lundgrenn, Yrsa Kolka Júlíusdóttir og Þórdís Tryggvadóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert