Senda öllum landsliðum Íslands kveðjur

mbl.is/skjáskot

Það er óhætt að segja að EM-stemningin sé í hámarki hjá íslensku þjóðinni en það sýnir sig ekki síst í óseðjandi eftirspurn eftir landsliðstreyjum og háværum hú-um sem óma um gjörvallt land.

Starfsmenn Garðabæjar og leikskólabörn í sveitarfélaginu eru meðal þeirra sem hafa þanið lungun í hinu vígalega víkingahrópi og senda öllum landsliðum Íslendinga baráttukveðjur á Facebook.

Afraksturinn má sjá hér fyrir neðan en Garðbæingar skora á önnur sveitarfélög að gera slíkt hið sama.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert