Sala lúxusbíla á fullri ferð

Sala bíla er sögð haldast í hendur við niðurstöður mælinga …
Sala bíla er sögð haldast í hendur við niðurstöður mælinga á bjartsýni landsmanna. mbl.is/RAX

Nýskráning bifreiða frá sjö þekktum lúxusbílaframleiðendum hefur aukist hér á landi samtals um 61% á fyrra árshelmingi miðað við sama tímabil í fyrra.

Þetta má lesa úr tölum um innflutning bifreiða sem Samgöngustofa hefur tekið saman fyrir Morgunblaðið. Alls voru 755 nýskráningar bifreiða frá Audi, BMW, Land Rover, Lexus, Mercedes Benz, Porsche og Tesla á fyrstu sex mánuðum ársins.

Nýskráningar bifreiða sömu framleiðenda í fyrra voru 471, að því er fram kemur í umfjöllun um innflutning lúxusbíla í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert