Umferðaróhapp í Mosfellsbæ í dag þegar krani kranabíls fór í göngubrú þegar bíllinn ók undir hana. Kastaðist framendi bílsins upp í loftið áður en bíllinn endaði á hringtorgi.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slysið klukkan 14.27. Var ökumaðurinn fluttur á slysadeild til aðhlynningar og slökkvilið sent á staðinn til að hreinsa upp olíu sem lekið hafði á svæðinu.