Ungir jafnaðarmenn stóðu fyrir árlegri minningarathöfn um fórnarlömb hryðjuverkanna í Ósló og Útey sem voru framin 22. júlí 2011.
Safnast var saman við Norræna húsið og gengið að minningarlundinum í Vatnsmýri. Matthew Deaves, ungur jafnaðarmaður, sagði nokkur orð í minningu Jo Cox, breskrar þingkonu sem var myrt af þjóðernissinna fyrr í sumar og Sema Erla Serdar, formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi flutti hugvekju.
Ungir jafnaðarmenn hafa frá árinu 2012 staðið fyrir árlegri minningarathöfn um hryðjuverkin, en helsta skotmark þeirra voru sumarbúðir ungra jafnaðarmanna í Noregi, AUF.