Slökkviliðinu á Akureyri barst tilkynning um eld í háalofti í húsi við Norðurgötu rétt fyrir klukkan 11 í morgun.
Náði slökkviliðið að ráða niðurlögum eldsins, en ekki er vitað um upptök hans. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu tók nokkurn tíma að slökkva endanlega í eldinum, en hann hafi ekki verið mikill.
Töluverðan reyk hafi þó gert vegna eldsins, sem borist hafi inn í aðra íbúð í húsinu. Reykræstingu er nú lokið og tekur lögregla við rannsókn málsins.