Lögregla rannsakar nú hvort skip sem stundar ferðaþjónustu frá Miðbakka skorti til þess tilskilin leyfi.
Frá þessu greinir í dagbók lögreglu þar sem segir að viðkomandi skip hafi lent í óhappi snemma í morgun en ekki tilkynnt um óhappið. Þannig vanti upp á tilkynningaskyldu en frekari upplýsingar um málið eru ekki í dagbókinni.