Hjólakappinn Jón Eggert Guðmundsson kemur í Hafnarfjörð á miðvikudag en hann hefur að undanförnu hjólað hringinn um landið, alls 3.200 kílómetra, með því að þræða alla vegi við strandlengjuna. Það var sama leið og hann fór fótgangandi fyrir tíu árum.
Í Morgunblaðinu í dag segir, að á tíunda tímanum í gærkvöldi var Jón Eggert á Kirkjubæjarklaustri. Stefndi þá að því að komast á Selfoss í nótt, þó langt væri.
Næstu dagleiðir verða öllu skemmri, þ.e. að komast til Grindavíkur í kvöld, þaðan til Keflavíkur næsta dag og í Hafnarfjörð kemur Jón Eggert á miðvikudag og lokar þar hringnum.