Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu eru nú að koma konu til aðstoðar sem hefur örmagnast á Esjunni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.
Konan er á gönguleiðinni upp að Þverfellshorni og voru sendir tveir hópar, annars vegar fjórhjólahópur og hins vegar gönguhópur, til móts við viðkomandi.