Áhöfn Drafnar vinnur að því að losa skipið

Aðstæður á strandstað eru góðar og enginn mengun hefur borist …
Aðstæður á strandstað eru góðar og enginn mengun hefur borist frá skipinu. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áhöfnin á rannsóknarskipinu Dröfn vinnur nú að því að losa skipið, sem strandaði í Þorskafirði í Barðastrandasýslu nú síðdegis. Beðið er eftir flóði og verður þess þá freistað að losa skipið, en næsta flóð er laust eftir miðnætti.

Björgunarsveitarmenn af svæðinu verða á vettvangi fram eftir kvöldi og Landhelgisgæslan fylgist grannt með gangi mála. Aðstæður á vettvangi eru góðar og engin hætta á ferðum.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kannaði aðstæður á strandstað nú síðdegis og reyndist engin mengun hafa borist frá skipinu, en meðfylgjandi myndir tók áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar af vettvangi í dag.

Dröfnin óskemmd á strandstað

Rannsóknarskipið Dröfn strandað

Reynt verður að koma skipinu á flot á ný á …
Reynt verður að koma skipinu á flot á ný á næsta flóði. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert