Mynd 1 af 19Forsetahjónin saman á svölum þinghússins árið 2008 eftir að Ólafur Ragnar hafði svarið embættiseið í fjórða skipti.mbl.is/Frikki
Mynd 2 af 19Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir heilsa mannfjölda er dreif að heimili þeirra á Seltjarnarnesi daginn eftir kosningarnar. Ólafur hlaut 40,9% atkvæða.mbl.is/Sverrir
Mynd 3 af 19Dalla, Ólafur Ragnar, Tinna og Guðrún Katrín eftir fyrstu innsetningarathöfn Ólafs Ragnars í embætti.mbl.is/Golli
Mynd 4 af 19Ólafur Ragnar og Guðrún Katrín sýna Margréti Þórhildi Danadrottningu og Hinrik greifa landið í opinberri heimsókn í maí 1998 og ferðast hér um Vestfirði. Um mánuði síðar fer Guðrún Katrín til Bandaríkjanna í stífa læknismeðferð.mbl.is/Golli
Mynd 5 af 19Guðrún Katrín Þorbergsdóttir lést 12. október 1998 í Seattle í Bandaríkjunum eftir erfið veikindi en hún greindist með hvítblæði haustið 1997. Hún hafði dvalið í 4 mánuði í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún gekkst undir læknismeðferð en hún náði ekki þeim bata sem vonast hafði verið eftir. Móttökuathöfn fór fram á Keflavíkurflugvelli þar sem Karl Sigurbjörnsson biskum flutti bæn við kistu Guðrúnar Katrínar. Guðrún Katrín og Ólafur Ragnar höfðu verið gift frá árinu 1974.mbl.is/ Golli
Mynd 6 af 19Dorrit Moussaieff skaut óvænt upp kollinum sem vinkonu forsetans í september 1999. Forsetinn lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali að hann hefði eignast vinkonu og óskaði eftir því að þjóðin veitti sér tilfinningalegt svigrúm til að þróa með sér tilfinningar gagnvart henni samfara óbreyttri ást á Guðrúnu Katrínu. Nokkrum dögum síðar axlarbrotnaði Ólafur Rangar er hann féll af hestbaki en Dorrit og hann höfðu verið í útreiðartúr í Landsveit. Voru þau mynduð er þau yfirgáfu Sjúkrahús Reykjavíkur, hönd í hönd. Sögðu fjölmiðlar frá því að Dorrit væri af gyðingaættum og hefði lengst af búið og starfað í Bretlandi; í fjölmiðlum og sem skartgripahönnuður.mbl.is/Júlíus
Mynd 7 af 19"Það er ekki hægt að lýsa því með orðum hve þakklátur ég er fyrir þá gæfu að Dorrti skuli hafa tekið mér, samþykkt að deila með mér og við saman lífinu sem eftir er," sagði Ólafur Ragnar á blaðamannafundi í maí 2000 er hann opinberaði trúlofun þeirra. "Það var mér mikil gæfa á erfiðum tímum í mínu lífi að hitta Dorrit," bætti hann við en heit þeirra og vilji komu í stað hefðbundinna trúlofunarhringa.mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Mynd 8 af 19Ólafur Ragnar og "heitkona hans" eins og Dorrit Moussaieff var þá kölluð, mynduð við Taj Mahal-hofið í október 2000 í opinberri heimsókn til Indlands ásamt Döllu Ólafsdóttur. Fréttamaður á staðnum ýjaði að því að von væri á yfirlýsingu frá þeim um það hvenær þau ætluðu að ganga í þa heilaga enda greinilega ástfangið fólk á ferð.mbl.is/RAX
Mynd 9 af 19Smalahundarnir á Dalsmynni sýna listir sínar og Dorrit í lopapeysu með hestamynstri sem var prjónuð handa henni sérstaklega. Forsetinn fékk aðra eins er þau voru í opinberri heimsókn í Snæfells- og Hnappadalssýslu.mbl.is/Þorkell
Mynd 10 af 19Það lítur út fyrir að leikskólastúlkunni á Fálkaborg hafi þótt talsvert koma til rauðlakkaðra tánagla forsetafrúarinnar.mbl.is/Valdís Thor
Mynd 11 af 19Bill og Hillary Clinton voru afar ánægð með Íslandsheimsókn sína árið 2005, en hér drekka þau kaffi með Dorrit Moussaieff og Ólafi Ragnari á Bessastöðummbl.is/ÞÖK
Mynd 12 af 19George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, heimsótti Ísland sumarið 2006 en forsetahjónin færðu Bush meðal annars veiðistöng, -hjól og flugu í bandarísku fánalitunum. Var það gert að frumkvæði forsetafrúarinnar sem forsetinn sagði í gamansömum tón ávallt þurfa að breyta fyrirliggjandi áætlunum.mbl.is/ÞÖK
Mynd 13 af 19Dorrit tók á móti Sylvíum Nóttum á Bessastöðum á öskudaginn 2006 og hóf söfnun ABC barnahjálpar um leið.mbl.is/Árni Sæberg
Mynd 14 af 19Dorrit er mikil vatnasportmanneskja en árið 2004 var hún verndari Siglingadaga á Ísafirði og skellti sér á sjóskíði af því tilefni. Forsetinn sagði síðar í ræði að líklega hafi einhverjar haldið að áhættuleikari hafi verið fenginn til að leika Dorrit þar sem hún þeyttist á sjóskíðunm fram og aftur um höfnina.mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Mynd 15 af 19Dorrit er sjaldan að tvínóna við hlutina. Á ólympíuleikunum í Peking sumarið 2008, þegar íslenska handknattleikslandsliðið vann til silfurverðlauna, lagði hún hönd á plóg í sjúkranuddinu.mbl.is/Brynjar Gauti
Mynd 16 af 19"Ísland er ekki lítið land. Ísland er stórasta land í heimi," verða án efa ein fleygustu orð 21. aldarinnar. Svo mælti forsetafrúin í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins eftir að Ísland vann Spánverja í undanúrslitunum á Ólympíuleikunum í Peking. Hér faðmast hún og varnarmaður liðsins, Sverre Jakobsson.mbl.is/Brynjar Gauti
Mynd 17 af 19Ólafur Ragnar horfa til fólks semsafnaðst hafði saman við þingsetningu árið 2009 og sló saman búsáhöldum.mbl.is/RAX
Mynd 18 af 19Dorrit og ÓlafurRagnar haldast í hendur við biskupsvíslu Agnesar M. Sigurðsdóttur árið 2012 þegar hún varð fyrst kvenna til að gegna embættinu. mbl.is/Eggert
Mynd 19 af 19Það þótti sæta stórtíðindum þega rÓlafur Ragnar Grímsson tilkynnti um framboð sitt til forseta Íslands í vor eftir að hafa gefið það út í nýársávarpi sínu að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Sú ákvörðun breyttist þó aftur stuttu síðar þegar hann sagði í yfirlýsingu að hann teldi ljóst að þjóðin ætti nú kost á að velja frambjóðendur sem hefðu "umfangsmikla þekkingu á eðli, sögu og verkefnum forsetaembættisins."mbl.is/Golli
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, lýkur formlega sínu fimmta kjörtímabili á miðnætti í kvöld, 31. júlí. Um leið kveður þjóðin líka Dorrit Moussaieff, að minnsta kosti í hlutverki forsetafrúar, en í um 16 ár hefur hún gefið Bessastöðum líf og lit. Stiklað er á stóru í gegnum árin 20 í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.