Koma nýrrar forsetafjölskyldu undirbúin

Friðbjörn B. Möller, starfsmaður forsetaembættisins, við viðgerðir í anddyri Bessastaðastofu …
Friðbjörn B. Möller, starfsmaður forsetaembættisins, við viðgerðir í anddyri Bessastaðastofu í gær. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Undirbúningur stendur nú yfir vegna komu nýrrar forsetafjölskyldu til Bessastaða en meðal annars þarf að aðlaga húsið breyttri fjölskyldustærð.

Að sögn Sigurðar Más Jónssonar, upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins, felst undirbúningurinn m.a. í viðhaldsframkvæmdum á forsetahúsi og ná framkvæmdirnar til ytra og innra byrðis hússins auk minni háttar framkvæmda á lóð þess. Lokið er múrviðgerðum að utan. Um er að ræða nauðsynlegt og eðlilegt viðhald eftir 20 ára samfellda búsetu fráfarandi forseta og fjölskyldu, að sögn Sigurðar. Viðgerðirnar gætu tekið einhverjar vikur og á meðan búa Guðni Th. Jóhannesson forseti og fjölskylda hans á heimili sínu á Seltjarnarnesi.

Einnig er unnið að viðhaldi á öðrum húsum á Bessastöðum, meðal annars Bessastaðastofu og þjónustuhúsi. Þá hefur verið unnið að viðhaldsframkvæmdum við Staðastað, skrifstofuhúsnæði forseta á Sóleyjargötu 1. Þar er meðal annars verið að mála skrifstofu forseta og móttökuherbergi.

Undirbúningur stendur nú yfir vegna komu nýrrar forsetafjölskyldu til Bessastaða …
Undirbúningur stendur nú yfir vegna komu nýrrar forsetafjölskyldu til Bessastaða en meðal annars þarf að aðlaga húsið breyttri fjölskyldustærð. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert