Bíllinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í tengslum við skotárásina í Fellahverfi í gærkvöldi er kominn í leitirnar. Bíllinn fannst í Breiðholti. Þá hefur lögreglan einnig náð sambandi við þá sem voru í bílnum, en í tilkynningu segir að þeir séu óslasaðir.
Lögreglan segir rannsókn málsins vera í fullum gangi, en að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.