Ekkert tilefni til að bregðast við

Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkissaksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segir …
Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkissaksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segir það á hendi endurupptökunefndar að fela sér að rannsaka vísbendingar sem fram hafa komið. mbl.is/ RAX

Davíð Þór Björg­vins­son, sett­ur rík­is­sak­sókn­ari í Guðmund­ar- og Geirfinns­mál­inu, segir enga ástæðu fyrir sig að bregðast við frásögnum af Geirfinnsmálinu í Hyldýpi Ómars Ragnarssonar eða óútkominni bók Jóns Daníelssonar, á þessu stigi.

„Fyrir það fyrsta þá er ég ekki búinn að lesa þessar bækur og önnur þeirra er raunar ekki komin út og síðan er það á hendi endurupptökunefndar að fela mér að rannsaka vísbendingar sem hafa komið fram,“ segir Davíð Þór.  „Það er ekkert tilefni fyrir mig að bregðast við á þessu stigi.“

Davíð Þór kveðst hafa fylgst með frásögnum fjölmiðla af bókunum. „Ef endurupptökunefnd felur mér að rannsaka einhver atriði, m.a. vegna þess sem fram kemur í þessum bókum þá mun ég gera það, en þangað til  held ég að mér höndum.“

Ýmsar vísbendingar hafa komið fram um eitt og annað tengt Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og hefur Davíð Þór verið að rannsaka eina þeirra, sem tengist yfirheyrslum yfir þeim Stefáni Alm­ars­syni og Þórði Jó­hanni  Eyþórs­syni sem voru hand­tekn­ir og yf­ir­heyrðir í júní vegna ábend­ing­ar sem barst lög­reglu.

„Það er svona um það bil verið að ljúka þeirri rannsókn og ég mun senda endurupptökunefnd á næstunni upplýsingar um hverju það hefur skilað.“

Áður hefur verið greint frá því að búist er við að end­urupp­töku­nefnd kom­ist að niður­stöðu um hvort Guðmund­ar- og Geirfinns­málið verði tekið upp á nýj­an leik í októ­ber eða nóv­em­ber. Davíð Þór bendir þó á að það kunni að dragast, ef rannsaka þurfi fleiri vísbendingar vegna málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert