Göngukonurnar komnar til byggða

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert

Göngukonurnar sem villtust á Fimmvörðuhálsi fyrr í dag eru komnar til byggða. Björgunarsveitarmenn á fjórhjólum fundu konurnar og hlúðu að þeim, færðu þeim hlý og þurr föt og gáfu þeim jafnframt mat og heita drykki.

Þær voru bæði kaldar og hraktar.

Frétt mbl.is: Kaldar og hraktar á Fimmvörðuhálsi

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út laust fyrir hádegi til að sækja tvær göngukonur sem voru villtar og örmagna á Fimmvörðuhálsi. Slæmt veður var á svæðinu, rigning og þoka. Skyggni var lítið sem ekkert, varla sást milli stika og fyrir vikið villtust konurnar af leið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

Þeim tókst að koma upp göngutjaldi og þar höfðust þær við þar til hjálp barst en unnt var að ná símasambandi við þær og senda þeim boð gegnum „Rescue me“-kerfið sem gaf upp nákvæma staðsetningu þeirra.

Á leið sinni til kvennanna rákust björgunarmenn á tvær aðrar göngukonur sem höfðu villst í þokunni á Fimmvörðuhálsi og þeim var einnig hjálpað til byggða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert