Leitin að Ellen Amilíu Óladóttur hefur enn ekki borið árangur og verður henni haldið áfram. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill biðja fólk um að hafa augun opin og kanna nærumhverfi sitt.
Ellen, sem er 25 ára, er með sítt ljóst hár, 174 cm á hæð og grannvaxin. Talið er að hún sé í gallabuxum og grárri hettupeysu en gæti haft önnur föt meðferðis.
Ellen hefur yfir að ráða silfurlitum Toyota Corolla, YE-147, 2002 árgerð (sjá mynd af sams konar bifreið). Síðast er vitað um ferðir hennar eftir kvöldmat á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst síðastliðinn.
Frétt mbl.is: Ellen Amilía fannst heil á húfi