Þingmenn Framsóknar funda í kvöld

Ráðherrabílar fyrir framan Stjórnarráðshúsið í kvöld.
Ráðherrabílar fyrir framan Stjórnarráðshúsið í kvöld. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Þingmenn Framsóknarflokksins sitja í kvöld þingflokksfund. Hófst fundurinn klukkan 20 nú í kvöld. Ekki er vitað hvert efni fundarins er. 

Alþingi kemur saman á morgun eftir sumarleyfi. Klukkan 10.45 er fundur í efnahags- og viðskiptanefnd. Klukkan 11 er svo þingflokksformannafundur og þingfundur hefst klukkan 15 síðdegis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka