Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segist m.a. hafa séð tækifæri til að styrkja Háskólann á Akureyri, þegar samið var við skólann um lögreglunám.
Í umfjöllun um ákvörðun ráðherrans í Morgunblaðinu í dag bendir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, á að í auglýsingu ráðuneytisins um lögreglunámið hafi ekki verið getið um fjarnám en af tilkynningu ráðuneytisins megi ráða að möguleikinn á að stunda fjarnám við HA hafi vegið þungt í ákvörðun ráðherra.