Sex sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem velferðarráðuneytið auglýsti laust til umsóknar 6. ágúst. Einn umsækjenda dró umsókn sína til baka.
Umsækjendurnir eru:
Drífa Sigfúsdóttir viðskiptafræðingur
Gunnar Þórðarson stöðvarstjóri
Gylfi Ólafsson, sjálfstætt starfandi heilsuhagfræðingur
Kristín B. Albertsdóttir forstjóri
Valbjörn Steingrímsson framkvæmdastjóri.
Þriggja manna nefnd sem er skipuð af heilbrigðisráðherra metur hæfni umsækjendanna, að því er kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.
Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vestfjarða sem nær yfir sveitarfélögin Vesturbyggð, Tálknafjarðarhrepp, Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp.
Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er með fjölmennustu vinnustöðum á Vestfjörðum. Þar starfa að jafnaði um 250 manns í um 150 stöðugildum og er ársvelta stofnunarinnar um 1,9 milljarðar króna, samkvæmt tilkynningunni.