Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hóta tveimur lögreglumönnum að kveikja í húsunum þeirra. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Maðurinn hótaði lögreglumönnunum þar sem hann sat með þeim í lögreglubíl sem lagt var við verslunina 10-11 í Hagasmára í Kópavogi fimmtudaginn 15. október á síðasta ári.
Maðurinn er talinn hafa brotið 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga. Þess er krafist að hann verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.