Gunnar Þórðarson tónlistarmaður hyggur á framboð fyrir alþingiskosningarnar í haust. Hann verður í framboði fyrir Vinstri græn í Suðurkjördæmi og mun sitja í 8. sæti.
„Ég geri mér nú litlar vonir um að komast á þing, Vinstri græn eru ekki með neinn þingmann í Suðurkjördæmi og ég verð í 8. sæti. Þetta er nú svona meira yfirlýsing um hvar hjarta mitt slær,“ segir Gunnar í samtali við mbl.is.
Hann segist aldrei hafa verið flokksbundinn í neinum stjórnmálaflokki, en nú verði breyting þar á. „Ég hef áhuga á stjórnmálum, fylgist vel með. Kannski er einhver pólitík í eðlinu,“ segir Gunnar.