„Hvar eru þessar lækkanir?“

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég kem hér upp til að auglýsa eftir verðlækkunum á innfluttum vörum vegna styrkingar krónunnar og lækkunar á sköttum og gjöldum sem þessi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir. Hvar eru þessar lækkanir? Ég hef ekki séð þær nema að litlu leyti,“ sagði Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag í umræðum um störf þingsins.

„Staðreyndin er sú að skatta- og gjaldahækkanir skila sér yfirleitt fljótt og vel út í verðlagið með hækkun vöruverðs, skattalækkanir og styrking krónunnar seint og illa. Aðgerðir sem ekki síst eru ætlaðar til að styðja við heimilin í landinu gagnast fyrst og fremst þeim sem stunda innflutning og smásölu. Þannig sýndu kannanir að verðlækkanir á heimilistækjum vegna afnáms vörugjalda og lækkunar virðisaukaskatts á sínum tíma voru mun minni en gera mátti ráð fyrir.“

Karl spurði hvort afnám tolla á fatnaði og skóm hefði skilað sér til neytenda. Það hefði ekki gerst nema að litlu leyti. „Oft lækkar vöruverð tímabundið í kjölfar skattalækkana en leitar fljótt í sama horf aftur. Þetta er ekki bara spurning um viðhorf þeirra sem reka fyrirtæki, þetta er líka dæmi um lítinn og óþroskaðan markað þar sem samkeppni er lítil. Í guðs bænum höfum það hugfast að þó að excel-skjalið segi okkur að verð á vöru og þjónustu eigi að lækka er raunveruleikinn oftar en ekki allt annar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert