Kynbundinn launamunur óbreyttur

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR. mbl.is/Golli

Frá janúar 2015 til apríl 2016 hækkuðu grunnlaun félagsmanna VR um 14,3% og heildarlaun þeirra um 15,8%. Kynbundinn launamunur minnkar ekki. Þetta er meðal þess sem fram kemur í árlegri launakönnun meðal félaga VR sem birt er í dag.

Launahækkun VR félaga er í takt við breytingar á launavísitölu Hagstofu Íslands, sem hækkaði um 14,5% á sama tíma, og launavísitölu VR sem hækkaði um 15,5%.

10% lægri laun vegna kynferðis

Könnunin leiðir í ljós að launamunur kynjanna helst óbreyttur á milli ára. Konur eru að jafnaði með 14,2% lægri heildarlaun en karlar og kynbundinn launamunur, það er launamunur sem ekki er hægt að skýra með neinu öðru en kynferði, er 10% en var 9,9% í síðustu könnun, að því er kemur fram í tilkynningu frá VR.

Munur varðandi hlunnindi

Ef litið er til grunnlauna eru konur með 12,2% lægri laun en karlar og þegar búið er að taka tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á launin situr eftir 9,9% kynbundinn munur á grunnlaunum. Umtalsverður munur er á kynjunum hvað varðar hlunnindi eins og símakostnað, líkamsræktarstyrki eða GSM-síma. Þannig fá 87% karla slík hlunnindi en 74% kvenna.  Ef konur innan VR fengju sömu laun og karlar í félaginu jafngildir núverandi launamunur því að konur séu „launalausar“ í 36 daga í ár.

Launamunur lítið breyst

Þrátt fyrir harða baráttu hefur launamunur kynjanna lítið breyst undanfarin ár og þarf að fara mörg ár aftur í tímann til að sjá marktækan mun. Síðan 2009 hefur kynbundinn launamunur hins vegar verið í kringum 10%.

„Það eru vissulega vonbrigði að þrátt fyrir harða og áralanga baráttu félagsins fyrir jöfnum launum karla og kvenna skuli munurinn enn vera svona mikill,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, í tilkynningunni. Hún segir vísbendingar um að launamunur kynjanna haldist í hendur við sveiflur í hagkerfinu, hann aukist í uppsveiflu en minnki í samdrætti. Þannig hafi dregið heldur úr launamun strax eftir hrun en nú sé margt sem bendi til að hann sé aftur að aukast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert