Kannast þú við gaukinn?

Facebook

Lítill gulur páfagaukur flaug inn í flugskýli Reykjavík Helecopters í morgun og eru starfsmenn fyrirtækisins að reyna að hafa upp á eigandanum. Kannast þú við gaukinn?

„Heyrst hefur að á flugvöllinn sæki ekki bara „vél fuglar“, heldur af öllum stærðum og gerðum, Eins og þessi litli sæti guli páfagaukur sem á sér kannski þann draum að verða þyrluflugmaður, en fyrir nokkrum mínútum síðan heimsótti hann Reykjavík Helicopters,“ segir á Facebook-síðu fyrirtækisins.

Verið er að reyna  að finna hans rétta heimili með hjálp frá Facebook. Síminn hjá Reykjavík Helicopter er 589 1000 en eins er hægt að hafa samband á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert