Þingflokkur Framsóknar mun funda kl. 13 í dag til að ræða stöðu flokksins og þjóðmálaástandið, samkvæmt heimildum mbl.is.
Í frétt RÚV um málið segir að staða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins, verði sérstaklega til umfjöllunar. Þar kemur einnig fram að til fundarins hafi verið boðað með stuttum fyrirvara.