Strætó og fólksbíll lentu saman

Strætisvagninn og fólksbíllinn lentu saman á horni Vonarstrætis og Suðurgötu.
Strætisvagninn og fólksbíllinn lentu saman á horni Vonarstrætis og Suðurgötu. mbl.is/Eggert

Umferð á horni Suðurgötu og Vonarstrætis stöðvaðist um tíma eftir að strætisvagn og fólksbíll lentu saman á gatnamótunum. Að sögn ljósmyndara Mbl.is sem átti leið hjá virtust ekki miklar skemmdir hafa orðið þegar bifreiðirnar tvær nudduðust saman.

Óhappið átti sér stað um kl. 13 í dag. Svo virðist sem að bílarnir tveir hafi lent saman þegar strætisvagninn beygði af Suðurgötu inn í Vonarstræti. Fólksbílnum var ekið Vonarstræti í austurátt af myndum að dæma.

mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Hallmundur Kristinsson: 13
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert