Óskað var eftir aðstoð lögreglu að heimili í Garðabæ um hálfsjöleytið í morgun vegna heimilisofbeldis.
Þrír einstaklingar voru í kjölfarið handteknir vegna líkamsárásar og verða þeir yfirheyrðir síðar í dag
Þá var lögregla einnig kölluð að heimili í Grafarvoginum um hálfsexleytið í morgun vegna heimilisofbeldis. Karlmaður var handtekinn í kjölfarið vegna líkamsárásar og verður hann yfirheyrður síðar í dag.