Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann á 171 kílómetra hraða á Reykjanesbraut við Voga klukkan 11.54 í morgun. Ökumaður var sviptur ökuréttindum á staðnum. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum.
Leyfilegur hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90 kílómetrar á klukkustund.