Reykjavíkurborg hefur ákveðið að fjölga þeim hverfum þar sem slökkt verður á götuljósum í kvöld á milli klukkan 22 og 23 til að gefa borgarbúum betri kost að sjá norðurljós. Miðað við veðurspá og norðurljósaspá ættu að vera talsverðar líkur á að norðurljósin dansi um himininn í kvöld og ákvað borgin því að slökkva líka götuljós í Árbæ, Bústaðahverfi og öllum Grafarvogi.
Nú er bara að sjá hvort norðurljósin láti sjá sig eða hvort það verði nokkuð sviðsskrekkur vegna mikils áhuga.