Vilhelm Úlfar Vilhelmsson lýsti því yfir að hann gefi kost á sér til formanns Framsóknarflokksins í kjöri um forystu flokksins sem fram fer á flokksþingi á morgun.
Vilhelm kvaddi sér hljóðs undir dagskrárliðnum „almennar umræður.“ Kvaðst Vilhelm hafa fundið upp nýtt hugtak, leigulýðræði. Þá talaði Vilhelm meðal annars um togstreitu hægri og vinstri stjórnmála.