Þingi frestað vegna Bakkamálsins

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fundur hefur staðið yfir hjá atvinnuveganefnd Alþingis vegna Bakkamálsins. Á meðan hefur þingfundum á Alþingi verið frestað til klukkan 16.

Þetta staðfesti Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, við mbl.is.

Hart var deilt um málið á þinginu fyrir hádegi og óskuðu þingmenn stjórnarandstöðunnar eftir því að umræðum um það yrði frestað. 

Frétt mbl.is: „Ógeðfelldur málatilbúnaður“

Spurður út í hvenær þinglok verði sagði Einar að ekkert væri komið í ljós með þau.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert